Um mig

Ég á ferð í Færeyjum árið 2017

Vinnan

Ég vinn fyrst og fremst á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum en líka í verkefninu Klínísk málsýnagreining (CALS), sem hluti af teymi Háskóla Íslands.

  • Ég sinni alls konar þróunar- og gagnavinnu Árnastofnun, ásamt hinum í máltækniteymi stofnunarinnar. Ég stelst líka stundum í framendavinnu, nú síðast þegar ég endurnýjaði málvinnsluvef stofnunarinnar og tilheyrandi forritaskil, sem ég er nokkuð ánægður með.

  • Ég vinn í verkefninu Klínísk málsýnagreining (Clinical Analysis of Language Samples, CALS) sem starfsmaður HÍ. Ég þróa aðferðir og tól til að mæla málfræðilegt flækjustig í málsýnum sem er safnað í klínísku umhverfi.

  • Eftir námsárin tók ég þátt í framlagi Rannsóknarstofunnar máls og tækni við Háskóla Íslands í máltækniáætlun stjórnvalda, sem framendaforritari.

  • Þar vann ég náið með málrýniteymi Miðeindar við þróun og prófun á notendatólum sem nota Yfirlestur.is forritaskilin. Það var í þessu verkefni sem ég náði almennilegum tökum á React, sem dæmi. Lausnirnar okkar komust ekki í almenna dreifingu en þetta var mikilvægur liður í undirbúningsvinnu fyrir íslenska málrýni.

  • Ég hef skrifað nokkrar fræðigreinar í gegnum árin, eins og sjá má á Google Sholar síðunni minni.

  • Ég hef tekið þátt gerð íslenskra Universal Dependencies málheilda síðan 2019, þegar ég vann við þróun UDConverter. Síðan þá hef ég aðstoðað við viðhald á flestum íslensku UD trjábönkunum, og einum af færeysku UD trjábönkunum.

  • Svo hef ég stundum sinnt kennslu við HÍ: Ég kenndi MLT803F Máltækni og fámenn málsamfélög á vorönn 2022 við Háskóla Íslands og þar á undan kenni ég áfangann ÍSL333G Forritun í hugvísindum á haustmisseri 2021

Ferilskráin mín er hér ef þú vilt vita meira.


Nám

Í grunninn er ég málfræðingur. Ég stundaði BA-prófið mitt við Háskóla Íslands árið 2018, þar sem ég skrifaði frábæra ritgerð um gerandviðskeytið -ar- í færeysku, undir handleiðslu Einars Freys Sigurðssonar. Helstu áherslur mínar voru generatíf setningafræði, talmeinafræði og líka smá samanburðarmálfræði (guilty pleasure).

Árið 2018 hóf ég MA nám í máltækni við Háskóla Íslands. Ég tók eitt ár í skiptinám erlendis, þar sem ég lærði við máltæknideildina við háskólann í Tübingen, sem ég er mjög þakklátur fyrir. Ég kláraði gráðuna mína í fyrstu stóru Covid-19 bylgjunni árið 2020, á meðan ég var úti, sem er reynsla sem ég mun aldrei gleyma. Ritgerðin mín um vélmörkun færeysku var skrifuð í umsjón Antons Karls Ingasonar. Aðaláherslan mín var í mállegum gagnasöfnum en ég tók einnig ýmis námskeið í gervigreindarlausnum og vélrænu gagnanámi.


Af hverju heimasíða?

Ég ræddi þetta örlítið í fyrstu færslunni minni hér inni. Stutta svarið: Það er mjög gaman.