Halló!

By Hinrik Hafsteinsson

Published or Updated on

Útsýnið úr svefnherberginu mínu

Þá er maður kominn á netið. Ekki seinna vænna.

Hvers vegna vefsíða?

Ég hef verið að hugsa um að stofna vefsíðu í svolítinn tíma. Undanfarna mánuði hef ég notað Obsidian.md til að halda utan um hugsanir mínar og hugmyndir og þegar ég áttaði mig á því að [Hugo](https://gohugo.io /) notar Markdown skrár í bakendann sinn, ákvað ég að slá til. Það er mjög gaman að stússast í þessu og ég vonast til að halda henni almennilega við.

Hvar fékk ég þetta Hugo þema?

Ég byggði þessa vefsíðu á síðunni hans Dann Bergs og þemanu hans. Hann skrifaði líka nokkrar greinar um sniðmát í Obsidian sem voru mér mjög hjálplegar. Mæli með þeim. Takk Dann!